Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 19. nóvember 2008 samþykkt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg milli Köldukvíslar og Leirvogsár, með mislægum gatnamótum á móts við Leirvogstungu og Tungumela. Samkvæmt skipulaginu verður Vesturlandsvegur færður um allt að 50 m á kafla og lækkaður um allt að 7 m þar sem gatnamótin koma. Tengivegir úr hverfunum tengjast inn á hringtorg, sem verður á brúm yfir þjóðveginum og tengist honum með að- og fráreinum. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, mæla fyrir um og öðlast þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 18. desember 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |