Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 563/2010

Nr. 563/2010 21. júní 2010
AUGLÝSING
um deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. og 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt eftirtaldar deiliskipulagsáætlanir og breytingar á deiliskipulagi:

Frístundalóð við Hafravatn.
Nýtt deiliskipulag frístundalóðar með landnúmer 125499, sem liggur að Hafravatni norðvestanverðu og er um 0,5 ha að stærð. Á lóðinni er nú gamalt frístundahús. Samkvæmt deiliskipulaginu verður heimilt að endurbyggja það eða reisa nýtt hús í stað þess. Hámarksstærð frístundahúss er 70 m² auk 20 m² geymsluhúss. Samþykkt skv. 25. gr. 10. mars 2010.

Svöluhöfði 1 - 5.
Breyting á deiliskipulagi vestursvæðis Höfðahverfis frá 2002. Skipulagsbreytingin felst í því að byggingarreitur fyrir útbyggingar á suðurhlið raðhússins nr. 1 - 5 við Svöluhöfða stækkar um 4,5 m til suðurs. Jafnframt er byggingarreitur leiðréttur til samræmis við núverandi hús. Samþykkt skv. 2. mgr. 26. gr. 5. maí 2010.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 21. júní 2010,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 6. júlí 2010