1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | Tollskrárnr. | | | kg | % | kr./kg | | Frjóegg til útungunnar: | | | | | 0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 01.01. - 31.12.12 | ótilgr. | 0 | 0 | 0407.1900 | Önnur | 01.01. - 31.12.12 | ótilgr. | 0 | 0 | Úr tollskrárn. | | | | | | 0408.1901 | Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum | 01.01. - 31.12.12 | ótilgr. | 0 | 39 | 0408.9901 | Soðin egg í ≥ 10 kg umbúðum | 01.01. - 31.12.12 | ótilgr. | 0 | 91 |
Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. 3. gr. Við innflutning á frjóeggjum (0407.1100 og 0407.1900) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum. 4. gr. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. 5. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála. 6. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. desember 2011. Jón Bjarnason. Ása Þórhildur Þórðardóttir. |