Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 527/2014

Nr. 527/2014 3. júní 2014
REGLUGERÐ
um (10.) breytingu á reglugerð nr. 662/2013, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2013/2014.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl., svohljóðandi:

Heimilt er að flytja aflamark í ufsa frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 10. júní 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júní 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.

B deild - Útgáfud.: 5. júní 2014