Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1146/2014

Nr. 1146/2014 17. desember 2014
REGLUGERÐ
um gjaldabreytingar á grundvelli laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd.

1. gr.

Þegar yfirskattanefnd hefur lokið úrskurði máls skal hún senda málsaðila, umboðsmanni hans og viðkomandi stjórnvaldi eintak úrskurðar. Leiði niðurstaða úrskurðar til þess að gera þurfi gjaldabreytingar í innheimtukerfum hins opinbera skal það stjórnvald sem tók hina kærðu ákvörðun framkvæma breytingarnar. Breytingin skal að jafnaði gerð innan tíu virkra daga frá því að úrskurður barst stjórnvaldi.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal yfirskattanefnd framkvæma gjaldabreytingar þegar um er að ræða:

 

a)

Tekjuskatt og önnur gjöld til ríkissjóðs sem ríkisskattstjóri leggur á einstaklinga eða lögaðila samhliða tekjuskatti.

 

b)

Útsvar.

 

c)

Virðisaukaskatt vegna viðskipta innanlands.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. og 20. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Guðrún Þorleifsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2014