1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka IV A, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | | | | kg | % | kr./kg | Tollskrárnr: | | | | | | | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst: | | | | | - Beinlaust: | 0202.3002 | Lundir | 01.01.12 - 30.06.12 | ótilgreint | 0 | 585 | 0202.3003 | Hryggvöðvar | 01.01.12 - 30.06.12 | ótilgreint | 0 | 435 | 0202.3004 | Vöðvar af læri | 01.01.12 - 30.06.12 | ótilgreint | 0 | 406 | 0202.3009 | Annað | 01.01.12 - 30.06.12 | ótilgreint | 0 | 240 |
3. gr. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. 4. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. 5. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. desember 2011. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Ása Þórhildur Þórðardóttir. |