Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 756/2007

Nr. 756/2007 9. ágúst 2007
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi milli Æsustaðaafleggjara og Helgadalsvegar, Mosfellsdal.

Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur þann 19. júlí 2007 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingar á deiliskipulagi reits í Mosfellsdal sunnan Þingvallavegar, milli Æsustaðaafleggjara og Helgadalsvegar. Breytingar felast í því að lóðum er fjölgað úr tveimur í sex. Lóðirnar eru frá 1 – 1,5 ha að stærð og verða nr. 1 – 11 við Roðamóa.
Deiliskipulagsbreytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 9. ágúst 2007.

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 22. ágúst 2007