Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 605/2008

Nr. 605/2008 24. júní 2008
REGLUGERÐ
um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008.

1. gr.

Almenn skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.

Úthluta skal aflamarki til fiskiskipa sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a. Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests.

b. Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. maí 2008.

c. Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilsfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. maí 2008. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Þetta skilyrði á þó ekki við ef einstaklingur eða lögaðili gera út fleiri en eitt fiskiskip sem skráð eru í fleiri en einu byggðarlagi. Í þeim tilvikum er heimilt að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í.

2. gr.

Sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks innan einstakra byggðarlaga.

Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.

3. gr.

Málsmeðferð á tillögum sveitarstjórna, staðfesting o.fl.

Ráðuneytið skal leita eftir afstöðu sveitarstjórna til þess hvort þær óski eftir að setja sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarksins innan einstakra byggðarlaga. Sveitarstjórnir skulu hafa tveggja vikna frest til að senda ráðuneytinu tillögur sínar.

Eftir að tillögur sveitarstjórna hafa borist skulu þær birtar með aðgengilegum hætti, svo sem á vefsíðu ráðuneytisins, eigi síðar en sjö dögum áður en tekin verður afstaða til þeirra.

Ef fallist verður á tillögur sveitarstjórna um slík skilyrði staðfestir ráðuneytið tillögurnar, auglýsir þær í B-deild Stjórnartíðinda og felur Fiskistofu að úthluta samkvæmt þeim. Berist tillögur sveitarstjórna ekki innan áðurnefnds frests eða ef ráðherra fellst ekki á tillögur sveitarstjórna fer um úthlutun aflamarks einstakra byggðarlaga til fiskiskipa samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum og ákvæðum þessarar reglugerðar.

4. gr.

Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.

Úthlutun aflamarks samkvæmt reglugerð þessari skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við landaðan afla í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. maí 2007 til 30. apríl 2008. Við úthlutun skal ekkert fiskiskip hljóta meira en 15 þorskígildislestir. Vikið skal frá þessari takmörkun á hlut hvers fiskiskips fáist heildarhlut viðkomandi byggðarlags ekki skipt með öðrum hætti. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur úthlutun til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.

Afli af fiskiskipum sem landað er í byggðarlagi án þess að þeir séu þar skráðir á sama tíma telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið skal við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. taka tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.

Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips hefur tekið við útgerð þess á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. er ekki heimilt að taka tillit til landaðs afla fyrri útgerðaraðila skipsins.

Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er heimilt að flytja rétt til úthlutunar aflamarks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari þess efnis í kaupsamningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.

5. gr.

Framkvæmd úthlutunar.

Fiskistofa annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, til fiskiskipa og skal auglýsa eftir umsóknum útgerða. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Fiskistofa ákveður og skal umsóknum skilað á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin leggur til. Umsóknarfrestur skal vera tvær vikur. Fiskistofa annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.

Ákvarðanir Fiskistofu varðandi úthlutun samkvæmt þessari grein er heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Kærufrestur er tvær vikur frá tilkynningu Fiskistofu um ákvörðun og skal úthlutun ekki fara fram fyrr en að þeim fresti liðnum. Skal ráðuneytið úrskurða um kærur innan tveggja mánaða. Ráðuneytið getur ákveðið að úthlutun aflamarks til skipa í tilteknu byggðarlagi verði frestað að hluta eða öllu leyti þar til það hefur lokið afgreiðslu á kærum sem borist hafa vegna úthlutunar þar.

6. gr.

Löndun til vinnslu.

Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu. Afla sem boðinn er upp á fiskmarkaði telst ekki hafa verið landað til vinnslu samkvæmt þessari grein. Þá er einungis heimilt að meta til viðmiðunar samkvæmt þessari grein landaðan afla sem ekki hefur áður verið metinn til úthlutunar byggðakvóta.

Með vinnslu skv. 1. mgr. er átt við flökun eða flatningu.

Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt eftir að lokið er því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt þessari grein og úthlutað aflamark verið flutt af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, sbr. 3. mgr. 4. gr., skal við mat á hvort uppfyllt eru skilyrði samkvæmt þessari grein einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi.

Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og staðfestingu tillagna sveitarstjórna samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 2.-3. gr.

Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í þremur áföngum, 1/3 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu 31. desember 2008 fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem uppá vantar að skilyrði séu uppfyllt. Því aflamarki sem óráðstafað er skal Fiskistofa úthluta til annarra fiskiskipa í viðkomandi byggðarlagi, sem uppfyllt hafa skilyrði þessarar greinar. Endurúthlutun skal fara fram í samræmi við skiptingu aflamarks samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem í gildi eru fyrir hvert byggðarlag á þeim tíma.

7. gr.

Lágmarksverð.

Verð fyrir afla sem landað er til vinnslu til að uppfylla skilyrði 6. gr. skal ekki vera lægra en það verð sem ákveðið er af Verðlagsstofu skiptaverðs.

8. gr.

Tryggingar fyrir greiðslum.

Heimilt er eigendum og útgerðum fiskiskipa að krefja vinnslustöðvar um tryggingar fyrir greiðslu afla sem landað er í byggðarlögum samkvæmt 6. gr., t.d. í formi bankaábyrgðar.

9. gr.

Framsal.

Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Framsal aflamarks skal þó vera heimilt hafi fiskiskip efnt löndunar- og vinnsluskyldu í samræmi við 6. gr.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 10. gr. er heimilt að úthluta aflamarki samkvæmt reglugerð þessari, til einstakra skipa til 31. ágúst 2008. Aflamark sem úthlutað er eftir 1. september 2008 tilheyrir fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2008.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. júní 2008.

Einar K. Guðfinnson.

Sigurgeir Þorgeirsson.

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2008