Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 747/2013

Nr. 747/2013 22. júlí 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 872/2006, um tilkynningu og birtingu ákvarðana um endurskipulagningu fjárhags og slit lánastofnana.

1. gr.

Í stað 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi:

Slík tilkynning skal vera í samræmi við ákvæði 13. og 44. gr. laga nr. 21/1991 um gjald­þrotaskipti o.fl. Tilkynninguna skal einnig birta í Stjórnartíðindum Evrópusambands­ins og a.m.k. tveimur innlendum dagblöðum í öllum ríkjum á Evrópska efnahags­svæðinu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. og 4. mgr. 99. gr. laga nr. 161/2002, um fjár­mála­fyrirtæki, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1049/2008, um breytingu á reglugerð um til­kynn­ingu og birtingu ákvarðana um endurskipulagningu fjárhags og slit lánastofnana, nr. 872/2006.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. júlí 2013.

F. h. r.

Kjartan Gunnarsson.

Hafdís Ólafsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 8. ágúst 2013