Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 27/2015

Nr. 27/2015 7. janúar 2015
AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2015.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 24. júlí 2015 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 30. október 2015. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. janúar 2015.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2015