1. gr. Ákvæði 1. gr. breytast og verða svohljóðandi: Læknadeild leggur árlega fyrir háskólaráð rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til náms í læknisfræði og sjúkraþjálfun. Skal beiðni frá læknadeild, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember. Háskólaráð afgreiðir tillögur læknadeildar eigi síðar en í janúar. Ákvörðun um fjölda nýnema, sem teknir eru inn ár hvert, gildir í eitt ár. 2. gr. Í stað dagsetningarinnar „1. júní“ í 1. mgr. 3. gr. (sbr. 1. gr. reglna nr. 277/2006) kemur: 20. maí. 3. gr. Í stað tilvísunarinnar „Aðalnámskrá framhaldsskóla – almennum hluta, 1999“ í 4. mgr. 5. gr. kemur: gildandi aðalnámskrá framhaldskóla. 4. gr. Í stað orðanna „Í fyrsta sinn (árið 2003) verður einkum“ í upphafi 5. mgr. 5. gr. kemur: Einkum er. 5. gr. Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillögu læknadeildar og með vísan til 2. mgr. 13. gr. laga nr. 41/1999, um Háskóla Íslands, sbr. 2. mgr. 89. gr. reglna nr. 458/2000, fyrir Háskóla Íslands. Breyttar reglur öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta í læknadeild frá og með háskólaárinu 2007 – 2008. Háskóla Íslands, 30. nóvember 2006. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |