Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 154/2014

Nr. 154/2014 29. janúar 2014
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 602/2008 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.

1. gr.

c-liður 4. gr. orðist svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 428/2013 frá 8. maí 2013 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar ákvæði Alþjóða­flugmála­stofnunar­innar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 204/2013 frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 131.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 428/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr. með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 204/2013 frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 131.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2014