Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 5/2008

Nr. 5/2008 2. janúar 2008
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2008.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2008 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu fyrir árið 2008.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2008 er sem hér segir:

Mjólk

49 kr.

hver lítri
Egg

310 kr.

hvert kg
Kartöflur

45 kr.

hvert kg
Rófur

75 kr.

hvert kg
Lambakjöt

375 kr.

hvert kg
Kjöt af veturgömlu fé

296 kr.

hvert kg
Annað kjöt af sauðfé

200 kr.

hvert kg
Ungnautakjöt

 444 kr.

hvert kg
Annað kjöt af nautgripum

399 kr.

hvert kg
Folaldakjöt

234 kr.

hvert kg
Annað kjöt af hrossum

100 kr.

hvert kg

Grísakjöt

315 kr.

hvert kg

Annað svínakjöt

222 kr.

hvert kg
Kalkúnar, endur og gæsir

346 kr.

hvert kg
Annað fuglakjöt

277 kr.

hvert kg
Fiskur

200 kr.

hvert kg

Fjármálaráðuneytinu, 2. janúar 2008.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2008