Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 42/2012

Nr. 42/2012 10. janúar 2012
AUGLÝSING
um óverulegar breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur að undangenginni málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt eftirtaldar óverulegar breytingar á deili­skipulagi:

Reykjahvoll 39 og 41.
Breyting á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal“ áður síðast breyttu 2. mars 2011. Skipulagsbreytingin felst í tilfærslu á lóðarmörkum milli þessara tveggja lóða, þannig að nr. 41 stækkar á kostnað nr. 39. Samþykkt í bæjarstjórn 21. desember 2011.

Aðaltún 2-4 og 6-8.
Breyting á deiliskipulagi Hlíðartúnshverfis sem samþykkt var 19. ágúst 1987. Skipulagsbreytingin felst í því að lóðir nr. 6 og 8 stækka til suðurs á kostnað óbyggðrar parhúsalóðar nr. 2-4, sem breytist í einbýlislóð. Samþykkt í bæjarstjórn 23. nóvember 2011.

Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

Mosfellsbæ, 10. janúar 2012.

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2012