Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 439/2011

Nr. 439/2011 28. apríl 2011
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2010 (að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) nr. 1 og 7).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011, frá 1. apríl 2011, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2010 frá 30. júní 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) nr. 1 og 7.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 574/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 22/2011, 14. apríl 2011, bls. 12.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011 er birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 437/2011 í B-deild Stjórnartíðinda (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2010).

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 28. apríl 2011.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Þóra M. Hjaltested.

B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2011