Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 28. mars 2007 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingar á deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal, nánar tiltekið við Bjargslund. Fyrirkomulagi á aðkomum að lóðum nr. 6 og 13 er breytt, Bjargslundurinn er styttur og minniháttar breytingar gerðar á lóðarmörkum, byggingarreitum og gangstígum á nokkrum stöðum. Deiliskipulagsbreytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 11. maí 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |