Frestur skattstjóra til að úrskurða kærur vegna álagningar opinberra gjalda á menn árið 2009, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, dags. 30. júlí 2009, er hér með framlengdur til 1. febrúar 2010. Ákvörðun þessi, sem byggir á heimild í 120. gr. laga nr. 90/2003, tekur þegar gildi. Reykjavík, 26. október 2009. F. h. ríkisskattstjóra, Ingvar J. Rögnvaldsson. Guðrún Jenný Jónsdóttir. |