Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 259/2009

Nr. 259/2009 20. febrúar 2009
REGLUGERÐ
um (40.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 21/2008 frá 15. mars 2008 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1139/2007 frá 1. október 2007 um að leyfa L-arginín sem aukefni í fóðri.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1140/2007 frá 1. október 2007 um bráðabirgðaleyfi fyrir nýrri notkun aukefnis sem þegar er leyft að nota í fóður.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1141/2007 frá 1. október 2007 um að leyfa 3-fýtasa (ROVABIO PHY AP og ROVABIO PHY LC) sem aukefni í fóðri.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl A, B, og C við reglugerð þessa.

3. gr.

Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. febrúar 2009.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 9. mars 2009