Með vísan til 11. gr. reglugerðar nr. 1084/2012 um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2013 og samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu, dagsetts 10. maí 2004, með síðari breytingum, hafa Bændasamtök Íslands sett verklagsreglur um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu. Reglurnar öðlast gildi við birtingu. Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 497/2012 um staðfestingu á verklagsreglum Bændasamtaka Íslands um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu sem birt var í Stjórnartíðindum 29. maí 2012. Reglurnar eru birtar í Stjórnartíðindum sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. ágúst 2013. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Halldór Runólfsson. |
Rebekka Hilmarsdóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |