Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 9. apríl 2014 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sem varðar lóðina Uglugötu 24-30. Tillagan var grenndarkynnt 21. febrúar til 24. mars 2014 og bárust ekki athugasemdir. Í breytingunni felst að tveggja hæða parhús á lóðinni breytist í tvö sambyggð tveggja hæða tvíbýlishús og að íbúðum á lóðinni fjölgi úr 6 í 8. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 10. apríl 2014, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |