Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1204/2006

Nr. 1204/2006 17. ágúst 2006
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 28. júní 2006 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á ofangreindu deiliskipulagi. Breytingin felst í því að lóðum norðan F-húsagötu er fjölgað úr tveimur í þrjár. Mosfellsbær hefur lýst því yfir að hann taki að sér að bæta það tjón sem einstakir aðilar kunni að verða fyrir vegna breytingarinnar.

Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 17. ágúst 2006,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2008