Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 40/2008

Nr. 40/2008 8. janúar 2008
AUGLÝSING
fjármálaráðherra um álagningu opinberra gjalda á árinu 2008.

1. gr.

Skattstjórar skulu eigi síðar en 31. júlí 2008 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2008. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaks­árið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 8. janúar 2008.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg H. Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2008