Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 171/2015

Nr. 171/2015 9. febrúar 2015
REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samning­inn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 264/2014 frá 14. mars 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á pólývínýlpýrrólídónvínýlasetatsamfjölliðu í fæðubótarefni í föstu formi og á viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 480.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 298/2014 frá 21. mars 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar magnesíumtvívetnisdífosfat til notkunar sem lyftiefni og sýrustillir. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 215/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 462.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 497/2014 frá 14. maí 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á advantami sem sætuefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samning­inn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 484.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 505/2014 frá 15. maí 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun karamellubrúnna litarefna (E 150a-d) í bjór og maltdrykki. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 260/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 492.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 506/2014 frá 15. maí 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar etýlláróýlargínat sem rotvarnarefni í tilteknar hitameðhöndlaðar kjöt­afurðir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 495.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2015