1. gr. Við 5. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Nemendur sem óska eftir að hefja grunnnám í hagfræði skulu gangast undir inntökupróf samkvæmt nánari reglum þar að lútandi. 2. gr. 1. mgr. 11. gr. orðast svo: Til að hefja nám við læknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar. 3. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta frá og með háskólaárinu 2012-2013. Háskóla Íslands, 13. febrúar 2012. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |