Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 447/2014

Nr. 447/2014 6. maí 2014
AUGLÝSING
um gjald vegna þátttöku á vigtarmannanámskeiðum.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtarmanna. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði vegna námskeiða og framkvæmd prófsins.

Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.*

Námskeiðin eru tvenns konar, þ.e. almennt námskeið og endurmenntunarnámskeið, en síðarnefnda námskeiðið verður ekki í boði fyrr en 2016. Neðangreint námskeiðsgjald og löggildingargjald gildir því aðeins fyrir almennt námskeið:

Texti

Námskeiðs-
gjald

Löggildingar-gjald*

Samtals

Almennt námskeið

55.700 kr.

8.300 kr.

64.000 kr.

Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, ferðakostnaði og ferðatíma.

Auglýsing þessi tekur þegar gildi og jafnframt er úr gildi fallin auglýsing nr. 1153/2011.

Innanríkisráðuneytinu, 6. maí 2014.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Sigurbergur Björnsson.

B deild - Útgáfud.: 8. maí 2014