Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 221/2013

Nr. 221/2013 21. febrúar 2013
REGLUGERÐ
um framkvæmd tilskipunar ráðsins 2006/88/EB að því er varðar eftirlits- og útrýmingaráætlanir og sjúkdómalausa stöðu ríkja, svæða og hólfa.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2010, frá 11. nóvember 2010, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2009/177, um framkvæmd tilskipunar ráðsins 2006/88/EB að því er varðar eftirlits- og útrýmingaráætlanir og sjúkdóma­lausa stöðu aðildarríkja, svæða og hólfa.

2. gr.

Ofangreind ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýra­sjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

4. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 55/1998, um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008, um fiskeldi, laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýra­sjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. febrúar 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 8. mars 2013