Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 2. mars 2011 skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt breytingar á deiliskipulagi „frá Reykjalundarvegi að Húsadal“ frá 2004, síðast breyttu 4. júní 2008. Breytingarnar felast í færslum á lóðarmörkum milli lóða nr. 17, 19 og 25 við Reykjahvol, þannig að suðurhluti lóðar nr. 19 leggst við lóð nr. 17, en austasti hluti lóðar nr. 17 leggst við nr. 25. Breytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæltu fyrir um og öðlast þær þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 21. mars 2011, Finnur Birgissson skipulagsfulltrúi. |