Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1185/2014

Nr. 1185/2014 19. desember 2014
REGLUGERÐ
um daggjöld fyrir dvalarrými, dagdvalarrými og hjúkrunarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015.

1. gr.

Daggjöld fyrir dvalarrými og dagdvalarrými.

Daggjöldum vegna dvalarrýma fyrir aldraða og vegna dagdvalar aldraðra er ætlað að mæta eðlilegum rekstrarkostnaði án viðhalds húsnæðis og skulu vera sem hér segir frá 1. janúar 2015:

1.

Daggjald á dvalarrými fyrir aldraða

11.668 kr.

2.

Gjald á dagdvöl fyrir aldraða

 6.091 kr.

Nauðsynlegur flutningskostnaður heimilismanna er innifalinn í dagdvalargjaldi. Þeir sem njóta þjónustu dagdvalar skulu greiða 1.020 kr. á dag, sbr. 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

Daggjald til dvalarheimilis fyrir aldraða er greitt frá upphafi dvalar og til loka þess mánaðar sem heimilismaður er tekinn inn á heimilið. Dvalargjald þetta skal ekki hafa áhrif á bætur Tryggingastofnunar ríkisins til heimilismannsins, greiðslu Trygginga­stofn­unar á dvalarframlagi til dvalarheimilisins og þátttöku heimilismanns í greiðslu dvalar­kostnaðar, sbr. 21. og 22. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breyt­ingum.

2. gr.

Þjónusta í dvalar- og dagdvalarrýmum.

Innifalin í daggjöldum skv. 1. gr. reglugerðar þessarar er hvers konar þjónusta sem heimilismönnum er látin í té á stofnunum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.

3. gr.

Daggjöld fyrir hjúkrunarrými og daggjöld fyrir sérhæfða dvöl.

A. Hjúkrunarrými.

Daggjald fyrir hjúkrunarrými skal vera jafnhátt daggjaldi fyrir dvalarrými skv. 1. gr. Dag­gjöldunum er ætlað að mæta eðlilegum rekstrarkostnaði án húsnæðisgjalds. Auk dag­gjalds skv. 1. gr. skal greitt fyrir heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum sem samið er um skv. 24. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar eða samkvæmt gjaldskrá Sjúkra­trygginga Íslands.

Daggjald í hjúkrunarrými skv. 1. mgr. skal vera frá 1. janúar 2015: 11.668 kr.

Daggjald skal greitt þrátt fyrir að heimilismaður hverfi af stofnun í stuttan tíma, svo sem til aðstandenda yfir helgi eða hátíðar, enda hafi heilbrigðisyfirvöld ekki aukakostnað af dvölinni.

Fari heimilismaður á sjúkrahús til skammtímainnlagnar skal greiða 70% af daggjaldi stofnunar í allt að 45 daga.

Við andlát heimilismanns eða þegar heimilismaður flytur fyrir fullt og allt af stofnun skal greiða fullt daggjald í allt að sjö daga. Ef heimilismaður í hvíldarrými andast skal greiða fullt daggjald í allt að tvo daga.

Daggjald skal greitt stofnun vegna sjúklinga með langvinna nýrnasjúkdóma þegar þeir vegna blóðskilunar eru innritaðir á sjúkrahús. Sjúkrahúsið greiðir kostnað vegna lyfja­gjafar eins og fyrir aðra blóðskilunarsjúklinga sem skráðir eru inn á það. Greiða skal 1.688 kr. á dag til viðbótar daggjaldi stofnunar fyrir hvern sjúkling með langvinnan nýrna­sjúkdóm sem dvelst á stofnun og þarf blóðskilun á sjúkrahúsi. 

B. Sérhæfð dvöl.

Liður

Viðf.

Heiti stofnunar

Daggjald kr.

477

110

Árborg, dagdvöl aldraðra v/minnissjúkra

13.295

477

110

Dagdvöl aldraðra í Reykjanesbæ v/minnissjúkra

13.295

477

110

Dagdvöl í Eyjafjarðarsveit

13.295

474

110

Dagdvöl og endurhæfingarstöð MS-sjúklinga

12.150

477

110

Drafnarhús, Hafnarfirði

13.295

470

110

Dvalarheimili aldraðra heyrnarlausa

14.155

476

110

Fríðuhús, Reykjavík

13.295

410

115

Hjúkrunarheimilið Eir

13.295

412

171

Hjúkrunarheimilið Skógarbær, endurhæfingardeild

32.752

472

110

Hlíðarbær, Reykjavík

13.295

477

110

Hrafnista í Reykjavík, dagdvöl endurhæfing

16.609

477

110

Jaðar, Ólafsvík

13.295

477

110

Lagarás, Egilsstöðum v/minnissjúkra

13.295

473

110

Lindargata, Reykjavík

13.295

477

110

Maríuhús, Reykjavík

13.295

475

110

Múlabær, Reykjavík

  8.678

477

110

Roðasalir, Kópavogi

13.295

434

110

Öldrunarstofnun Akureyrar v/minnissjúkra

13.295

Nauðsynlegur flutningskostnaður heimilismanna er innifalinn í dagdvalargjaldi. Þeir sem njóta þjónustu dagdvalar skulu greiða 1.020 kr. á dag, sbr. 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

4. gr.

Húsnæðisgjald.

Tryggingastofnun ríkisins skal greiða húsnæðisgjald til að mæta kostnaði vegna fast­eignagjalda, trygginga, viðhalds, eftirlits og umsýslu húsnæðis sem nýtt er til reksturs hjúkrunar- og dvalarrrýma. Gjaldið árið 2015 er 10.677 kr. á m² á ári og reiknast að hámarki á 60 m² fyrir hvert hjúkrunarrými að meðtöldu sameiginlegu rými. Gjaldið reiknast aldrei á stærra rými en sem stærð húsnæðisins nemur.

Tryggingastofnun ríkisins skal greiða gjald til að mæta viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs á dagdvalarrýmum. Gjaldið árið 2015 er 3.690 kr. á m² á ári og reiknast að hámarki á 30 m² fyrir hvert dagdvalarrými að meðtöldu sameiginlegu rými. Gjaldið reiknast aldrei á stærra rými en sem stærð húsnæðisins nemur.

Viðhaldshluta í húsnæðisgjaldi er ætlað að standa undir öllu almennu viðhaldi húsnæðis en ekki stofnkostnaði, afskriftum og meiriháttar breytingum og endurbótum á húsnæði.

5. gr.

Framkvæmd.

Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 22. gr., 2. mgr. 24. gr., 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, 6. og 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 1. og 3. mgr. 21. gr., 1. mgr. 22. gr. og 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, gildir frá 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 99/2014 um daggjöld fyrir hjúkrunar-, dvalar og dagvistarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2014.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Anna Lilja Gunnarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2014