Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 719/2008

Nr. 719/2008 18. júlí 2008
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2106/2005.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10 ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2006, frá 28. apríl 2006, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2106/2005 frá 21. desember 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar IAS-staðal 39.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 2106/2005 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB nr. 46/2008, 18. júlí 2008, bls. 133.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 34/2006, 29. júní 2006, bls. 15.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikn­ings­skila­staðla og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 18. júlí 2008.

F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.

Þórður Reynisson.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2008