Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 695/2013

Nr. 695/2013 5. júlí 2013
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. Að stöðubann verði við norður- og suðurkant Skothúsvegar frá Suðurgötu að Fríkirkjuvegi.
  2. Að stöðubann verði við suðurkant Njarðargötu frá Þórsgötu að Eiríksgötu.
  3. Að stöðubann verði við vesturkant Orrahóla frá Krummahólum að bílastæði í suðurenda götunnar og við austurkant frá innkeyrslu að Orrahólum 7 að Norðurhólum.
  4. Að stöðubann verði í Flúðaseli beggja vegna götunnar frá Seljabraut vestur fyrir Fjarðarsel og að beygju í Flúðaseli.

Stöðubannið er táknað með umferðarmerkinu B21.11.

  1. Að einstefna verði á Bergstaðastræti til norðurs frá Skólavörðustíg að Laugavegi.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 5. júlí 2013.

Stefán Eiríksson.

B deild - Útgáfud.: 19. júlí 2013