Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 11/2014

Nr. 11/2014 29. janúar 2014
LÖG
um breytingu á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo:
    Starfsemi samkvæmt lögum þessum skal háð reglulegu opinberu eftirliti af hálfu Matvæla­stofnunar. Umfang og tíðni eftirlits skal byggt á áhættuflokkun.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 29. janúar 2014.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Sigurður Ingi Jóhannsson.

A deild - Útgáfud.: 3. febrúar 2014