Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1079/2010

Nr. 1079/2010 15. desember 2010
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

1. gr.

Í stað orðanna „félags- og tryggingamálaráðherra“ í 2. gr. kemur: velferðarráðherra.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 44. gr.“ í 2. mgr. kemur: ráðherra skv. 5. mgr. 48. gr.

2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Reglugerð nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, með síðari breytingu, gildir um fram­kvæmd Tryggingastofnunar ríkisins.

3. gr.

4. málsl. 7. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalar­kostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.

4. gr.

4. málsl. 11. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalarkostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.

5. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti“ í 15. gr. kemur: velferðar­ráðuneyti.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2011.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. desember 2010.

Guðbjartur Hannesson.

Ágúst Þór Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2010