1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 43/2008 frá 27 apríl 2008 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi: | A) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1380/2007 frá 26. nóvember 2007 um að leyfa endó-1,4-beta-xýlanasa (Natugrain Wheat TS) sem aukefni í fóðri. |
2. gr. Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. 3. gr. Um aukefni samkvæmt ofangreindri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. janúar 2009. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Baldur P. Erlingsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |