Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 274/2015

Nr. 274/2015 16. mars 2015
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

1. málsliður 8. gr. breytist og orðast svo: Til að hefja BS-nám við viðskiptafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr.:

  1. Í stað orðanna „Æskilegur undirbúningur“ í upphafi 1. málsliðar 2. mgr. kemur: Nauðsynlegur undirbúningur.
  2. Á eftir 2. mgr. bætist inn ný málsgrein, svohljóðandi: Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: 21 eining (35 fein) í stærðfræði og 30 einingar (50 fein) í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 6 einingar (10 fein) í eðlisfræði, 6 einingar (10 fein) í efnafræði og 6 einingar (10 fein) í jarðfræði.
  3. Núverandi 3. mgr. orðast svo: Æskilegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 24 einingum (40 fein) í stærðfræði.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta frá og með háskólaárinu 2015-2016.

Háskóla Íslands, 16. mars 2015.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 24. mars 2015