Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1301/2011

Nr. 1301/2011 30. desember 2011
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2012.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2011, álagningarárið 2012, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

 

kr.    

Mjólkurkýr

105.000

Holdakýr og naut

91.000

Kvígur, 1 1/2 árs og eldri

67.000

Geldneyti

48.000

Kálfar, yngri en 1/2 árs

12.000

Ær og sauðir

7.200

Hrútar

11.500

Gemlingar

6.400

Geitur

3.600

Hross á 14. vetri og eldri

17.000

Hross á 5. – 13. vetri

34.000

Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri

130.000

Önnur nýtanleg reiðhross

65.000

Verðlaunahross á 5. – 13. vetri

180.000

Kynbótahestar á 5. – 13. vetri

260.000

Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri

360.000

Tryppi á 2. – 4. vetri

10.500

Folöld

7.500

Hænsni, eldri en 6 mánaða

870

Varphænsni 6 mánaða og yngri

550

Kjúklingar

200

Endur

760

Gæsir

1.520

Kalkúnar

2.200

Gyltur

34.000

Geltir

50.000

Grísir

7.500

Kanínur

2.000

Minkar:

Karldýr

6.200

Kvendýr

4.300

Hvolpar

0

Refir:

Karldýr og kvendýr

6.000

Hvolpar

0

Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri

3.500

Reykjavík, 30. desember 2011.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2012