Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Fyrir mistök var við útgáfu birtur rangur html texti með þessari reglugerð. Þau mistök hafa nú verið leiðrétt.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1037/2013

Nr. 1037/2013 22. nóvember 2013

REGLUGERÐ
um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2014.

1. gr.

Heildargreiðslumark og greiðslumark lögbýla.

Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2014 skal vera 123 milljónir lítra og skiptist í greiðslumark lögbýla. Greiðslumark lögbýla reiknast í lítrum mjólkur og skiptist hlutfallslega milli lögbýla á sama hátt og greiðslumark til framleiðslu mjólkur á framleiðsluárinu 1. janúar til 31. desember 2013.

2. gr.

Aðilaskipti að greiðslumarki.

Um aðilaskipti að greiðslumarki fer samkvæmt reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum.

3. gr.

Nýting greiðslumarks.

Afurðastöð skal greiða framleiðanda lágmarksverð fyrir mjólk sem miðast við 1. flokks mjólk með skilgreindu efnainnihaldi. Fyrir aðra mjólk sem ekki stenst kröfur sem 1. flokks mjólk greiðir afurðastöð verð allt niður að leyfilegum afföllum frá verði 1. flokks mjólkur.

Greiðslutilhögun afurðastöðvar vegna framleiðslu umfram greiðslumark skal vera með þeim hætti að greiðslur vegna ónotaðs greiðslumarks skulu ganga hlutfallslega til annarra greiðslumarkshafa. Skal fyrst greitt fyrir fyrsta prósentustig sem greiðslumarkshafi framleiðir umfram eigið greiðslumark og síðan annað prósentustig og svo áfram eftir því sem ónotað greiðslumark gefur tilefni til.

Framleiðsla umfram greiðslumark skal fara á erlendan markað á ábyrgð hvers fram­leiðanda og viðkomandi afurðastöðvar. Framkvæmdanefnd búvörusamninga getur þó gefið skriflega heimild til sölu þessara vara innanlands ef heildarframleiðsla verður minni en sala og birgðastaða gefa tilefni til.

Öll mjólk sem seld er í afurðastöð frá viðkomandi lögbýli skal reiknast með í uppgjöri greiðslumarks fyrir lögbýlið.

Mjólk sem unnið er úr til sölu á sama lögbýli og framleiðsla fer fram telst til framleiðslu innan greiðslumarks.

Bændasamtök Íslands safna skýrslum um framleiðsluna.

4. gr.

Brottfall og geymsla greiðslumarks.

Greiðslumark lögbýla sem ekki hefur verið nýtt til framleiðslu að neinu leyti í full tvö verðlagsár (framleiðsluár) fellur niður, enda hafi Matvælastofnun tilkynnt eiganda lögbýlis um rétt til sölu eða geymslu greiðslumarksins. Heimilt er framleiðanda að leggja greiðslumark lögbýlisins inn til geymslu hjá Matvælastofnun, lengst til 31. desember 2016 og sætir það þá sömu breytingum og annað greiðslumark.

5. gr.

Beingreiðslur.

Beingreiðsla er framlag úr ríkissjóði til framleiðenda mjólkur og greiðist mánaðarlega úr ríkissjóði til handhafa beingreiðslna, sbr. 55. gr. laga nr. 99/1993. Beingreiðslur fyrir verðlagsárið 2014 skulu vera 5.466 milljónir kr. Dreifing beingreiðslna og fráviksmörk skulu vera með eftirfarandi hætti:

 

a)

47,67% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum óháð framleiðslu, að því tilskildu að framleiðsla lögbýlisins sé a.m.k. 95% greiðslumarks á tímabilinu. Greiða skal 1. hvers mánaðar, 1/12 hluta, í fyrsta sinn 1. janúar 2014.

 

b)

35,45% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum eftir framleiðslu allt að greiðslumarki hvers framleiðanda. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar, í fyrsta sinn 1. mars 2014.

 

c)

16,88% beingreiðslna skal ráðstafa til greiðslumarkshafa, vegna framleiðslu innan greiðslumarks, eftir einstökum mánuðum, samkvæmt neðanfelldri töflu:

Janúar

0%

Febrúar

0%

Mars

0%

Apríl

0%

Maí

0%

Júní

0%

Júlí

10%

Ágúst

15%

September

15%

Október

20%

Nóvember

20%

Desember

20%

Að því marki sem beingreiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks skal greitt samkvæmt stafliðum a og b að ofan hlutfallslega út á heildarframleiðslu umfram greiðslumark hvers lögbýlis í samræmi við 3. gr.

Verði mjólkurframleiðsla minni en sem nemur heildargreiðslumarki þannig að bein­greiðslur ganga ekki út samkvæmt þessari reglu, skal ónotuðum beingreiðslum jafnað út á allt innvegið mjólkurinnlegg greiðslumarkshafa.

Framleiðendur geta einungis öðlast rétt til beingreiðslna fyrir mjólk sem framleidd er á því lögbýli sem greiðslumark fylgir innan þess framleiðslutímabils sem reglugerð þessi nær yfir.

Öll mjólk sem seld er í afurðastöð frá viðkomandi lögbýli og heimaunnin mjólk sam­kvæmt ákvæðum 3. gr. skal reiknast með í uppgjöri greiðslumarks fyrir lögbýlið.

6. gr.

Handhafar beingreiðslna.

Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli. Á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þó er heimilt, þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu, að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Matvælastofnun allar breytingar á því hver eigi að vera handhafi beingreiðslna. Séu handhafar tveir eða fleiri, skal gefa upp hlutfallslega skiptingu beingreiðslna. Jafnframt skulu handhafar beingreiðslna tilgreina sérstakan reikning í bönkum eða öðrum viðskiptastofnunum, sem greiðslur skulu lagðar inn á.

7. gr.

Uppgjör beingreiðslna.

Sjái handhafi beingreiðslna fram á að nýting greiðslumarks gefi ekki rétt til 95% af bein­greiðslum framleiðslutímabilsins, ber honum að tilkynna það Matvælastofnun, sem þá skal haga beingreiðslum í samræmi við áætlaða nýtingu. Komi fram við lok fram­­leiðslu­­tímabilsins, að ofgreitt hafi verið, ber handhafa beingreiðslna að endurgreiða mismuninn samkvæmt reikningi.

Afurðastöð skal senda Matvælastofnun tilkynningu um stöðvun mjólkurinnleggs, ef mjólkur­innlegg framleiðanda fellur niður í heilan mánuð eða lengri tíma.

8. gr.

Útreikningur á greiðslumarki lögbýla.

Matvælastofnun reiknar út greiðslumark til framleiðslu mjólkur, heldur skrá yfir greiðslu­mark lögbýla og handhafa réttar til beingreiðslu samkvæmt því og lætur afurða­stöðvum og búnaðarsamböndum í té eintak af henni fyrir starfssvæði þeirra. Matvæla­stofnun aflar upplýsinga og annast útreikninga vegna framkvæmdar þessarar reglu­gerðar og hefur eftirlit með uppgjöri afurðastöðva við framleiðendur. Afurða­stöðvum og framleiðendum er skylt að láta Matvælastofnun í té allar þær upplýs­ingar sem að gagni geta komið við störf Matvælastofnunar og þau geta veitt.

9. gr.

Tilkynningar um greiðslumark lögbýla.

Matvælastofnun skal tilkynna framleiðendum um greiðslumark lögbýla. Framleiðendur eiga þess kost að koma á framfæri athugasemdum og skulu þær berast Matvælastofnun innan 20 daga frá dagsetningu tilkynningar um greiðslumark, ella gildir það fyrir fram­leiðslu­tímabilið. Matvælastofnun endurskoðar útreikninga, sem athugasemdir eru gerðar við og tilkynnir framleiðanda niðurstöðu sína. Berist Matvælastofnun ekki athuga­semdir við þá niðurstöðu innan 25 daga frá dagsetningu endurútreikningsins gildir hann fyrir hlutaðeigandi framleiðslutímabil. Uni viðkomandi framleiðandi ekki þeirri niðurstöðu, hefur hann rétt til að skjóta ágreiningnum með rökstuddri kæru til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sbr. 10. gr.

10. gr.

Kæruheimild.

Ágreining um ákvörðun á greiðslumarki lögbýlis, skráningu á greiðslumarki og um rétt til beinna greiðslna er heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

11. gr.

Ráðstöfun óframleiðslutengds og/eða minna markaðstruflandi stuðnings.

Óframleiðslutengdur og/eða minna markaðstruflandi stuðningur að fjárhæð 189,0 milljónir kr. skal greiddur í janúar 2014 til Bændasamtaka Íslands, sem annast úthlutun fjárins. Ráðstöfun fjárins skal vera sem hér segir:

Ræktunarverkefni: 96,0 milljónum kr. skal varið til gras- og grænfóðurræktar samkvæmt reglum sem Bændasamtök Íslands setja.
Skipting á 93,0 milljónum kr. til kynbótaverkefna, þróunarverkefna í nautgripa­rækt og til nýliðunar í stétt mjólkurframleiðenda, skal vera sem hér segir:

Kynbótaverkefni: 53,5 milljónir kr.
Til nýliðunar í stétt mjólkurframleiðanda: 26,5 milljónir kr.
Þróunarfé til rannsókna- og/eða þróunarverkefna í naut­­gripa­rækt: 13,0 milljónir kr.

12. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

13. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verð­lagn­ingu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2014 og gildir til 31. desember 2014.

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 1084/2012 um greiðslu­mark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Rebekka Hilmarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2013