Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 747/2009

Nr. 747/2009 20. ágúst 2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti.

1. gr.

Við XIV. kafla bætist ný grein, 55. gr. a., sem orðast svo:

Sóttvarnarundanþága og sóttvarnarvottorð fyrir skip.

Heilbrigðisnefnd, í samráði við Siglingastofnun, hefur heilbrigðiseftirlit með skipum og gefur út vottorð um sóttvarnarundanþágu og sóttvarnarvottorð fyrir skip. Vottorð skulu vera á ensku og í samræmi við fyrirmynd í fylgiskjali 4 og gilda í sex mánuði hið mesta. Fram­lengja má vottorð um einn mánuð ef ekki er unnt að framkvæma skoðun eða beita til­skildum sóttvarnarráðstöfunum í viðkomandi höfn. Heilbrigðisnefnd er heimilt að fram­lengja vottorð um sóttvarnarundanþágu um einn mánuð í senn þar til skip nær til hafnar sem getur gefið út sóttvarnarvottorð.

Heimilt er að veita vottorð um sóttvarnarundanþágu fyrir skip í þeim höfnum sem til­greindar eru í töflu 1 í fylgiskjali 5. Eingöngu er heimilt að veita sóttvarnarvottorð fyrir skip í þeim höfnum sem tilgreindar eru í töflu 2 í fylgiskjali 5.

Ef grunur er um hættu fyrir heilsu manna um borð og ekki eru til staðar gild vottorð um sótt­varnar­undanþágu eða sóttvarnarvottorð fyrir skip er heilbrigðisnefnd, að höfðu samráði við Siglingastofnun, heimilt að skoða skipið og getur í kjölfarið gripið til eftir­farandi aðgerða:

  1. Ef engar vísbendingar eru um hættu fyrir heilsu manna getur heilbrigðisnefnd gefið út vottorð um sóttvarnarundanþágu fyrir skipið.
  2. Ef vart verður við hættu fyrir heilsu manna skal heilbrigðisnefnd tilkynna sótt­varnar­lækni um hana og með fullnægjandi hætti grípa til sóttvarnarráðstafana eða að sjá til þess að til þeirra verði gripið svo hún geti gefið út sóttvarnarvottorð fyrir skipið. Ef aðstæður eru þess eðlis að ekki er unnt að ná fullnægjandi árangri við sóttvarnarráðstafanir, að mati heilbrigðisnefndar, skal gera athugasemd um það í sóttvarnarvottorði skipsins. Nauðsynlegt er að ljúka sóttvarnarráðstöfunum áður en nýtt sóttvarnarvottorð er veitt.

Útgerð farkosts greiðir kostnað vegna eftirlits og útgáfu vottorðs um sótt­varnar­undanþágu eða útgáfu sóttvarnarvottorðs.

Heilbrigðisnefnd skal senda Siglingastofnun og sóttvarnarlækni upplýsingar um útgáfu á vottorði um sóttvarnarundanþágu og sóttvarnarvottorð, ásamt upplýsingum um gildistíma þeirra.

Framangreind ákvæði eiga ekki við um fiskiskip, lystisnekkjur, björgunarbáta, hafn­sögu­báta, vitaskip, varðskip, dráttarskip, dýpkunarskip, né heldur um smáskip og báta sem eru minni en 200 brúttótonn.

2. gr.

Reglugerðin er sett með stoð í 4. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á ákvæðum alþjóða heilbrigðisreglugerðarinnar (IHR 2005) varðandi vott­orð um sóttvarnarundanþágu fyrir skip og sóttvarnarvottorð fyrir skip, að höfðu samráði við samgönguráðuneyti, hvað hlutverk Siglingastofnunar varðar, og heilbrigðis­ráðuneyti, hvað hlutverk sóttvarnarlæknis varðar.

Reglugerð þessi tekur þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 20. ágúst 2009.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 4. september 2009