Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 75/2013

Nr. 75/2013 14. janúar 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „60 eininga diplómanámi á meistarastigi“ í 1. mgr. 3. gr. kemur: í kennslu­fræði­hluta náms á meistarastigi.

2. gr.

Í stað orðanna „85 nemendur að hámarki“ í 1. málsl. 3. mgr. 5. gr. kemur: 95 nemendur að hámarki.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræða­sviða og deilda háskólans, gilda frá og með háskólaárinu 2013-2014 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.

Háskóla Íslands, 14. janúar 2013.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2013