Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 121/2014

Nr. 121/2014 20. janúar 2014
AUGLÝSING
um umferð á Hvolsvelli, Rangárþingi eystra.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50 frá 1987, með síðari breytingum og að fengnum tillögum sveitarstjórnar Rangárþings eystra hefur lögreglustjórinn á Hvolsvelli ákveðið eftirfarandi:

Að setja biðskyldu á gatnamót Sólbakka/Öldubakka, Gilsbakka/Öldubakka, Dals­bakka/Öldubakka og Hvolstúns/Öldubakka þannig að umferð um Öldubakka hafi forgang. Við enda Öldubakka skal setja biðskyldu á gatnamót Öldubakka/Hvols­túns þannig að Hvolstún hafi forgang.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingar.

Lögreglustjórinn á Hvolsvelli, 20. janúar 2014.

Kjartan Þorkelsson.

B deild - Útgáfud.: 4. febrúar 2014