Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 440/2008

Nr. 440/2008 25. apríl 2008
REGLUGERÐ
um hvaða atriði skulu talin fram undir einstökum liðum á eyðublöðum fyrir bókhaldsyfirlit yfir útgjöld vegna samgöngumannvirkja í 1. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1108/70.

1. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 851/2006 frá 9. júní 2006 um hvaða atriði skulu talin fram undir einstökum liðum á eyðublöðum fyrir bókhaldsyfirlit í 1. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1108/70 (kerfisbundin útgáfa), sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2007 frá 27. apríl 2007, sem birtist í 38. viðauka við EES-samninginn 9. ágúst 2007, bls. 28, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessar.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 17. gr. vegalaga nr. 80/2007 og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 25. apríl 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 15. maí 2008