Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fenginni tillögu umhverfis- og samgöngunefndar hefur sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar staðfest svofellda tilhögun hraðatakmarkana á Sauðárkróki á 308. fundi sínum þann 20. nóvember 2013 og eru því hér með settar eftirfarandi reglur um hraðatakmarkanir á Sauðárkróki: Hámarkshraði ökutækja á Sauðárkróki er 35 km/klst. að undanskildum eftirtöldum götum: Skagfirðingabraut frá bæjarmörkum við Sauðárkróksbraut að Skólastíg Borgargerði Borgarflöt Borgarmýri Borgartún Borgarröst Borgarteigur Borgarfit Sæmundarhlíð Sauðárhlíð Sauðármýri Hegrabraut Strandvegur Eyrarvegur Skagavegur að bæjarmörkum Hesteyri Sandeyri Skarðseyri Háeyri Lágeyri
Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð á Sauðárkróki sem brjóta í bága við auglýsingu þessa. Lögreglustjórinn á Sauðárkróki, 3. apríl 2014. Bjarni Stefánsson. |