Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 4/2011

Nr. 4/2011 2. ágúst 2011
AUGLÝSING
um upplýsingaskiptasamning og tvísköttunarsamninga við Bresku Jómfrúaeyjar.

Samningur milli Íslands og Bresku Jómfrúaeyja um upplýsingaskipti að því er varðar skatta, samningur til að komast hjá tvísköttun einstaklinga, samningur um að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum og samningur um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja, sem gerðir voru í Kaupmannahöfn 18. maí 2009, öðluðust gildi 20. júlí 2011.

Samningurinn um upplýsingaskipti að því er varðar skatta er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari, samningurinn til að komast hjá tvísköttun einstaklinga sem fylgiskjal 2, samningurinn um að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum sem fylgiskjal 3 og samningurinn um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja sem fylgiskjal 4.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 2. ágúst 2011.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 30. desember 2011