Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 29. ágúst 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum samþykkt deiliskipulag fyrir hluta tengivegar frá Vesturlandsvegi að Helgafellshverfi. Deiliskipulagið tekur til um 500 m kafla, frá Álafossvegi við Brekkuland að hringtorgi vestan miðhverfis Helgafellshverfis. Gerð er grein fyrir legu vegarins í plani og hæð, tengingum við aðrar götur, gangstígum og hljóðvistaraðgerðum. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. Nýtt deiliskipulag yfirtekur og fellir úr gildi fyrra deiliskipulag, sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. desember 2006. F.h. Mosfellsbæjar, 24. september 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |