Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 808/2014

Nr. 808/2014 9. september 2014
REGLUGERÐ
um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 884/2014 frá 13. ágúst 2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1152/2009.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Allur kostnaður við opinbert eftirlit, þ.m.t. sýnataka, greining sýna, geymsla, förgun og allar aðrar ráðstafanir sem gripið er til skal greiddur af innflutnings- og dreifingaraðilum eftir því sem við á.

4. gr.

Innflutnings- eða dreifingaraðilar sem flytja inn eða dreifa vörum sem reglugerð þessi tekur til, skulu senda Matvælastofnun tilkynningu og gögn um fyrirhugaðan innflutning ásamt upplýsingum um áætlaðan komutíma.

5. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. j laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

7. gr.

Reglugerð þessi er samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

8. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 284/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1152/2009 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína og um að fella úr gildi ákvörðun 2006/504/EB, með síðari breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 11. september 2014