Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 40/2009

Nr. 40/2009 20. janúar 2009
REGLUGERÐ
um (38.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

 

A)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 516/2007 frá 10. maí 2007 um varanlegt leyfi fyrir aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2007 frá 8. desember 2007.

 

B)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 537/2007 frá 15. maí 2007 um leyfi fyrir gerjunarafurðinni Aspergillus oryzae NRRL 458 (Amaferm) sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2007 frá 8. desember 2007.

 

C)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 538/2007 frá 15. maí 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á Enterococcus faecium DSM 7134 (Bonvital) sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2007 frá 8. desember 2007.

 

D)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 634/2007 frá 7. júní 2007 um að leyfa selenmetíónín, framleitt með Saccharomyces cerevisiae NCYC R397, sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2007 frá 8. desember 2007.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl A, B, C og D við reglugerð þessa.

3. gr.

Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. janúar 2009.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2009