Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur bæjarráð Kópavogsbæjar samþykkt þann 25. júlí 2013 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Málsmeðferð var skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi. Kópavogi, 10. september 2013. Birgir Hlynur Sigurðsson skipulagsstjóri. |