Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 281/2007

Nr. 281/2007 16. mars 2007
AUGLÝSING
um deiliskipulag frístundalóðar við Hafravatn, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 13. desember 2006 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag frístundalóðar við Hafravatn, landnúmer 125380. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á lóðinni, sem er um 6.200 m² að stærð, megi reisa frístundahús allt að 60 m² auk 10 m² geymsluhúss.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 16. mars 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 30. mars 2007