Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1162/2008

Nr. 1162/2008 22. desember 2008
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2009.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2009 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort heldur sem er einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning land­búnaðar­skýrslu rekstrarársins 2009.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfs­manna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi land­búnaðar­skýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og mats­verðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2009 er sem hér segir:

  

kr.

Mjólk

 

64 

hver lítri

Egg

 

375 

hvert kg

Kartöflur

 

48 

hvert kg

Rófur

 96 

hvert kg

Lambakjöt

 

465 

hvert kg

Kjöt af veturgömlu fé

 

336 

hvert kg

Annað kjöt af sauðfé

 

112 

hvert kg

Ungnautakjöt

 

467 

hvert kg

Annað kjöt af nautgripum

 

427 

hvert kg

Folaldakjöt

 

239 

hvert kg

Annað kjöt af hrossum

 

100 

hvert kg

Grísakjöt

 

350 

hvert kg

Annað svínakjöt

 

247 

hvert kg

Kalkúnar, endur og gæsir

 

410 

hvert kg

Annað fuglakjöt

 

315 

hvert kg

Fiskur

 

250 

hvert kg

Fjármálaráðuneytinu, 22. desember 2008.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2008