Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 904/2010

Nr. 904/2010 25. nóvember 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 460/2009 (um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 460/2009 frá 4. júní 2009 um inn­leiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunar­nefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 16.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 460/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 64/2010, 18. nóvember 2010, bls. 524.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 68/2009, 17. desember 2009, bls. 16.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 25. nóvember 2010.

Árni Páll Árnason.

Kjartan Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 26. nóvember 2010