Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 510/2015

Nr. 510/2015 9. apríl 2015

GJALDSKRÁ
Hornafjarðarhafnar.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði I.

Gjaldskráin er við það miðuð að Hornafjarðarhöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

2. gr.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

3. gr.

Skipagjöld.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjald 14,25 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftir­farandi:

Skip við bryggju 4 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mán­aðar­gjald, 88,80 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 10.909 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 brt greiði þó aldrei lægra en 6.348 kr. á mánuði.

4. gr.

Vörugjöld.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skips­fjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undan­tekningum er síðar er getið.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

  a) Umbúðir sem endursendar eru.
  b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
  c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
  d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstak­lega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri, eða afgreiðslu­maður skips, skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skip­stjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farm­eigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vöru­gjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.: Gjald kr. 287 fyrir hvert tonn:
  Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.: Gjald kr. 550 fyrir hvert tonn:
  Lýsi og fiskimjöl.
3. fl.: Gjald kr. 594 fyrir hvert tonn:
  Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurn­ings­olíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og bygginga­framkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
4. fl.: Gjald 1,60%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brott­flutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildar­verðmæti aflans.
  Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.
  Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
  Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess.
  Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er 6.188 kr. hvert tonn.
  Lágmarksgjald í öllum flokkum er 225 kr.

5. gr.

Hafnsögugjöld.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá aðra leið:

Fyrir leiðsögu til hafnarinnar 4.857 kr. fyrir hvert skip, auk 7,75 kr.fyrir hvert brúttótonn.

Þjónusta lóðsbátsins Björns lóðs:
Flutningur á hafnsögumanni, hver ferð 22.000 kr./ferð
Þjónusta innan hafnargarðs 25.000 kr./klst.
Þjónusta utan hafnargarðs í dagvinnu 35.000 kr./klst.
Þjónusta utan hafnargarðs í yfirvinnu 45.000 kr./klst.
Festargjöld:
Fyrir hvern festarmann í dagvinnu 11.200 kr.
Farþegagjald:
Gjald fyrir hvern farþega á skemmtiferðaskipum 45 kr.
Vatnssala:
Vatnsafgreiðslugjald 8.600 kr./hver afgreiðsla utan dagvinnutíma
Vatn til skipa 354,50 kr./m³
Vatn til stærri 2.428 kr./mán.
Vatn til heimasmábáta 1.420 kr./mán.
Sorpgjald:
Sorpurðunargjald fer eftir gjaldskrá sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is.
Fyrir sorphirðu rukka starfsmenn hafnarinnar fyrir hverja sérferð 11.200 kr.
Almennt sorpgjald, stærð skips < 10 tonn 526 kr./mán.
Almennt sorpgjald, stærð skips 10-100 tonn 2.489 kr./mán.
Almennt sorpgjald, stærð skips > 100 tonn 3.862 kr./mán.
Fyrir hverja losun 5.598 kr.
Vogargjald:
Almenn vigtun 150 kr./tonn
Lágmarksgjald fyrir einstaka vigtun 891 kr.
Skráningargjald afla 99 kr./tonn
Yfirvinna vigtarmanns 4.300 kr. pr. klst.
Útkall utan dagvinnu er 2 klst.
Magnafsláttur er veittur á skráningargjaldi fyrir uppsjávarfisk (síld, loðnu o.fl.) skv. eftir­farandi reglum:
1 - 10.000 tonn á ári 32 kr./tonn
10.001 - 20.000 tonn á ári 16 kr./tonn
20.001 og meira á ári 8 kr./tonn
Kranagjald:
Kranagjald (hámark 10 skipti á mán.) 812 kr.
Rafmagnssala:
Almennt raforkugjald án vsk. 15 kr./kwst.
Tengigjald 8.600 kr. hver afgreiðsla utan dagvinnutíma
Hreinsunar- og mengunarstörf:  
Hafnarverðir við hreinsun- og mengunarstörf 5.513 kr. fyrir hverja klst. í dagvinnu
Hafnarverðir við hreinsun- og mengunarstörf 9.924 kr. fyrir hverja klst. í yfirvinnu
Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða:
Öryggisgjald fyrir hverja skipakomu 35.000 kr.
Öryggisgæsla og farmvernd í dagvinnu 5.602 kr.
Öryggisgæsla og farmvernd í yfirvinnu 11.273 kr.
Leiga á gámasvæði – geymsla fyrir bátakerrur:
Lóð fyrir 40 feta gám 2.000 kr. á mán. 24.000 kr. á ári
Lóð fyrir bátakerru 2.000 kr. á mán. 24.000 kr. á ári
Aðstoð Björns lóðs við hjálparvana skip:
Fyrir skip sem eigi komast til hafnar fyrir eigin vélarafli (hjálparvana) en eru þó ekki í yfirvofandi hættu fer um greiðslu samkvæmt samkomulagi frá 16. september 1987 milli Sam­steypu íslenskra fiskiskipatrygginga og Landhelgisgæslu Íslands annars vegar og Land­helgis­gæslu Íslands og LÍÚ hins vegar. Helstu ákvæði þess samnings, m.v. láns­kjara­vístölu 3.990 stig.
Skip innan við 100 brúttótonn:  
Grunngjald 128.443 kr.
Fyrir hverja rúmlest 20-70 2.250 kr.
Fyrir hverja rúmlest 70-100 3.586 kr.
Tímagjald í lausakeyrslu 32.360 kr.
Tímagjald fyrir báta í drætti 41.701 kr.
Tímagjald fyrir lausakeyrslu og drátt báta < 26 brt 32.360 kr.
Skip stærri en 100 brúttórúmlestir:  
Grunngjald, lágmark 875.590 kr.
Grunngjald, hámark 1.476 kr.
Tonnagjald 2.557 kr./brt
Hver klst. í lausakeyrslu 51.122 kr./klst.
Hver klst. með skip í drætti 76.679 kr./klst.

6. gr.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrif­stofu hafnarinnar. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslu­miðlunar við uppgjör skulda.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Horna­fjarðar­hafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnar­stjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnar­stjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður halds­rétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða komið á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema sérstaklega sé samið um annað. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Horna­fjarðar­höfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hornafjarðarhöfn er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

7. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn er skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglu­gerðar um hafnamál nr. 326/2004.

Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu og fellur eldri gjaldskrá úr gildi.

Samþykkt í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 12. mars 2015.

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 9. apríl 2015.

Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 9. júní 2015